Efni
Námskeið og fræðsla
Næstu námskeið:
Í Reykjavík, áætlað 13 okt 2011 - skráning á netfangi Halldórs, halldor@bjarkir.net
Tengiliðir ASEBA á Íslandi sf. veita gjarnan upplýsingar og ráðgjöf ef óskað er.
Matslistar á öðrum tungumálum.
Matstæki ASEBA hafa verið gefin út á yfir 60 tungumálum og er hægt að útvega matslista á öðru tungumáli ef þess gerist þörf.
Notendur sem þess óska, geta haft samband við ASEBA á Íslandi vegna slíkra erinda en einnig er hægt að hafa senda fyrirspurn beint til aðalstöðva ASEBA í USA.
Til að svara vangaveltum notenda ASEBA matslistanna og ADM hugbúnaðarins um hvort hægt sé að nota þá útgáfu hugbúnaðar sem þeir hafa, er hér að finna stutta samantekt um mismun á þeim útgáfum hugbúnaðarins sem komið hafa síðan 2000.
Námskeið:
Notkun ASEBA matslistanna krefst góðrar þekkingar á viðeigandi handbókum og hugbúnaði.
ASEBA á Íslandi býður upp á námskeið varðandi notkun kerfisins. Farið er yfir efni varðandi; aðferðarfræði, notkun staðlaðra matstækja, spurningalista fyrir alla aldurshópa og helstu breytingar, kynntar rannsóknir og gagnagrunnur ASEBA, kynnt og þjálfuð uppsetning og notkun ADM hugbúnaðarins, farið í fyrirlögn, óvissuþætti, úrvinnslu, innslátt og túlkun, og kynntir möguleikar í rannsóknum og greinandi vinnslu.
Kennari er Halldór Sig. Guðmundsson.
Aðrir tengiliðir ASEBA á Íslandi sf., Guðrún Bjarnadóttir, sálfræðingur og Helga Hannesdóttir, barna- og unglingageðlæknir, koma einnig að námskeiðshaldi ásamt Ingibjörgu M. Guðmundsdóttur, sálfræðingi, allt eftir aðstæðum og fjölda þátttakenda hverju sinni.
Notkun ASEBA (v/námskeið 16.nóv. 2010)
Hér eru glærur og efni fyrir þá sem sóttu námskeiðið.
Glærur frá deginum
Flæðirit, einkennaflokkun og normaldreifing
Skýringar útreiknings á þætti - Family (18-59)